Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   mið 22. febrúar 2012 19:21
Elvar Geir Magnússon
Ítalía: Catania fjarlægist fallsvæðið
Siena 0 - 1 Catania
0-1 Francesco Lodi ('23 , víti)

Einn leikur var í ítölsku A-deildinni og það var viðureign Siena og Catania, tveggja liða sem voru rétt fyrir ofan fallsætin fyrir leikinn.

Leikurinn átti upphaflega að fara fram í byrjun mánaðarins en var frestað vegna snjós.

Siena var hættulegra liðið í fyrri hálfleik en þrátt fyrir það var það hlutskipti gestana að vera með forystu í hléinu.

Um miðjan fyrri hálfleikinn fékk Catania vítaspyrnu þegar hendi var dæmd á Alessandro Gazzi.

Francesco Lodi fór á punktinn og náði að skora þrátt fyrir að markvörðurinn hafi farið í rétt horn.

Ekkert var skorað í seinni hálfleiknum svo Catania vann mikilvægan sigur. Liðið er nú níu stigum frá fallsæti en Siena er á meira hættusvæði, tveimur stigum fyrir ofan fallsæti.
Slapp
banner
banner
banner
banner