Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   mið 22. febrúar 2012 20:30
Brynjar Ingi Erluson
Heimild: Yahoo Sports 
Zlatan Ibrahimovic keyrði utan í blaðakonu
Sænski framherjinn Zlatan Ibrahimovic, sem leikur með AC Milan á Ítalíu keyrði utan í blaðamann er hann var að yfirgefa æfingasvæðið í gær.

Zlatan, sem er 30 ára gamall var að keyra af æfingasvæðinu í svartri Audi bifreið sinni er hann keyrði utan í konu sem reyndi að ná nokkrum orðum af framherjanum. Konan sem vinnur fyrir ítalskt blað fékk spegla bílsins í sig og þurfti aðhlynningu á sjúkrahúsi eftir atvikið.

Leikmaðurinn hafði þó enga hugmynd um að atvikið hefði átt sér stað, en hann komst að því er hann kom heim til sín. Konan hefur formlega kvartað undir framherjanum, sem á ekki sjö dagana sæla.

AC Milan stendur með Zlatan og segir ekki við hann að sakast í umræddu atviki. Blaðakonan var á miðri götu og beindi upptökutæki að bílnum meðan hann var á ferð.

Hann bíður þessa stundina eftir úrskurði ítalska knattspyrnusambandsins eftir að hafa áfrýjað þriggja leikja banni sem hann fékk fyrir að slá Salvatore Aronica leikmann Napoli í viðureign liðanna fyrir nokkrum vikum.


Slapp
banner
banner
banner