Ítalska félagið Lazio hafnaði uppsagnarbréfi frá þjálfaranum Edy Reja. Samkvæmt ítölskum fjölmiðlum þá sendi Reja félaginu fax í dag og sagðist vilja stíga frá borði.
Hann verður við stjórnvölinn á morgun þegar liðið mætir Atletico Madrid á Spáni í seinni leik liðanna í 32-liða úrslitum Evrópudeildarinnar.
Hann verður við stjórnvölinn á morgun þegar liðið mætir Atletico Madrid á Spáni í seinni leik liðanna í 32-liða úrslitum Evrópudeildarinnar.
Það er þó búist við að hann láti af störfum á föstudag nema liðið nái óvænt að snúa við 3-1 tapi í fyrri leiknum gegn Atletico.
Samband Reja og stjórnar Lazio hefur ekki verið gott en hann reifst við forsetann Claudio Lotito vegna óánægju með þann litla pening sem hann hefur fengið til leikmannakaupa.
Reja bauðst til að stíga frá borði eftir tap á heimavelli gegn Genoa í september en leikmenn og Lotito vildu þá halda honum.
Lazio er í fjórða sæti ítölsku A-deildarinnar, með jafnmörg stig og Udinese sem er í þriðja sæti og er í harðri baráttu um Meistaradeildarsæti.





