Landsliðsmaðurinn Emil Hallfreðsson er sá leikmaður sem ræður ríkjum á Stadio Marc‘Antonio Bentegodi, heimavelli Verona, samkvæmt frétt sem birtist á heimasíðu félagsins í dag.
Þar kemur fram að Emil leiði örugglega í kjöri á Il Mastino del Bentegodi, sem er stigagjöf þar sem blaðamönnum og stuðningsmönnum gefst tækifæri á að greiða leikmönnum atkvæði fyrir frammistöðu eftir hvern heimaleik Verona.
Emil er sem stendur með 283 stig það sem af er þessu keppnistímabili en sá sem er í öðru sæti, markvörðurinn Rafaele De Andrade, er með 111 stig.
Emil hlaut þessa nafnbót líka eftir síðasta keppnistímabil og fékk þá alls 206 stig en sá sem kom næstur í kjörinu, Nicola Ferrari fékk alls 130 stig.
Verðlaunin voru veitt í fyrsta skipti eftir keppnistímabilið 1999-2000 og hefur einn leikmaður hlotið nafnbótina tvisvar til þessa, þ.e. markvörður liðsins Rafaele De Andrade en ljóst er að Emil mun jafna þann árangur að loknu þessu tímabili.
Þess má geta að rúmenski vandræðagemlingurinn Adrian Mutu vann til þessara verðlauna árið 2001.


