Margrét Lára Viðarsdóttir lék sinn fyrsta alvöru leik með liði sínu Turbine Potsdam þegar það mætti á heimavöll Hamburger SV fyrr í dag.
Hamburger SV 1-1 Turbine Potsdam
1-0 Aylin Yaren ('48)
1-1 Patricia Hanebeck ('72)
Margrét Lára byrjaði á bekknum en kom inn á þegar leið á leikinn.
Það voru leikmenn Potsdam sem voru hættulegari á fyrstu mínútunum og eftir aðeins 8 mínútur fékk Potsdam víti þegar markmaður Hamburger, Bianca Weech felldi Yuki Nagasato framherja Potsdam inn í eigin teig og í kjölfarið fékk Weech að líta gula spjaldið.
Á punktinn steig miðjumaðurinn Jennifer Zietz en hún setti boltann í stöngina og út og klúðraði þar með frábæru tækifæri til að koma Potsdam yfir.
Barátta liðanna hélt áfram og Hamburger var staðráðið í því að gefa ekkert eftir gegn sterkum leikmönnum Potsdam og staðan í hálfleik var jöfn, 0-0.
Hamburgar mætti kröftugt í seinni hálfleikinn og eftir aðeins þrjár mínútur skoraði Aylin Yaren frysta mark leiksins og kom Hamburger yfir.
Á 60. mínútu ákvað Bernd Schröder þjálfari Potsdam að skipta Margrét Láru inn á völlinn og út fyrir hana fór fyrrum samherji hennar hjá Kristianstad Anotnia Göransson.
Margrét var fljót að láta finna fyrir sér og kom sér í gott færi en skaut yfir.
Á 72. mínútu náði Potsdam að jafna leikinn með marki frá Patriciu Hanebeck, sem er gamall samherji Margrétar frá því þegar þær léku með Duisburg. En sú sem lagði markið upp var Viola Odebrecht sem einng lék með Margréti í Val og Duisburg.
Margrét lét svo aftur til sín taka þegar hún átti skot rétt framhjá marki Hamburger en þar við sat og því þurftu bæði lið að sætta sig við jafntefli.
Næsta umferð verður á sunnudaginn en þá mæta Margrét og félagar Bayer 04 Leverkusen.


