Heimild: Sky Sports
Sér fyrir enda í deilunni
Roberto Mancini kveðst vera reiðubúinn að setja Carlos Tevez aftur í lið Manchester City. Þetta sagði Ítalinn eftir að hafa lesið afsökunarbeiðnina sem Tevez gaf frá sér í gær. Tevez hefur verið í útlegð frá City eftir að hafa neitað að koma inná sem varamaður gegn Bayern Munich í sepember.
Talið var að ferli Tevez hjá City væri á enda og ekki bætti úr skák þegar Tevez sagði nýverið að Mancini hefði ráðskast með sig eins og hund.
Tevez hefur hinsvegar séð að sér og beðist afsökunar á framferði sínu. Mancini segir að þeir ætli að hittast og ræða málin.
,,Ég leit á það sem Carlos sagði í yfirlýsingunni og við munum tala saman á morgun.
,,Viku eftir atvikið í Þýskalandi hringdi ég í hann og sagði, 'Carlos, biddu alla afsökunar og þá er þetta búið mál fyrir mér´."
Mancini segir að það muni hinsvegar taka framherjann nokkrar vikur að koma sér aftur í form.
,,Ég held að hann þurfi að æfa í tvær til þrjár vikur, síðan skoðum við málið. Það er alveg eðlilegt." sagði Mancini að lokum.


