Það var ekki boðið upp á flugeldasýningu í leikjum kvöldsins í fyrri umferð 16-liða úrslita Meistaradeildarinnar.
Það var mikið fjör fyrsta hálftímann í leik Basel og FC Bayern í Sviss þar sem Xherdan Shaqiri, leikmaður Basel, var að mæta liðinu sem hann mun ganga til liðs við í sumar.
Það var mikið fjör fyrsta hálftímann í leik Basel og FC Bayern í Sviss þar sem Xherdan Shaqiri, leikmaður Basel, var að mæta liðinu sem hann mun ganga til liðs við í sumar.
Með hreinum ólíkindum er að ekkert mark var skorað í fyrri hálfleiknum þar sem markverðir beggja liða voru í stuði. Basel fékk betri færi og átti skalla sem var varinn í stöngina og skot slá.
Seinni hálfleikurinn var mun rólegri en samt sem áður kom eina mark leiksins í honum. Holger Badstuper, varnarmaður Bayern, sat eftir svo varamaðurinn Valentin Stocker var réttstæður og tryggði heimamönnum sigur.
Leikur Marseille og Inter var hreinlega hundleiðinlegur. Gestirnir voru örlítið hættulegri og fékk Dejan Stankovic besta færi þeirra en fór illa að ráði sínu. Heimamenn í Marseille tryggðu sér sigurinn í upbpótartíma þegar Andre Aye skoraði eftir horn.
Basel 1 - 0 FC Bayern
1-0 Valentin Stocker ('86 )
Marseille 1 - 0 Inter
1-0 Andre Ayew ('90+2)


