Vitor Pereira, þjálfari Porto, segir að lokatölurnar í leik Manchester City og Porto í Evrópudeildinni í kvöld gefi ekki rétta mynd af leiknum.
City vann leikinn 4-0 og komst í 16-liða úrslitin með 6-1 sigri samanlagt.
City vann leikinn 4-0 og komst í 16-liða úrslitin með 6-1 sigri samanlagt.
„Þar til City skoraði seinna markið þá var Porto betra liðið. Við vitum samt að City er gott lið og nýtir skyndisóknirnar vel," segir Periera.
„Þeir hafa frábæra leikmenn fram á við og seinni markið kom okkur í vandræði. Við vildum snúa dæminu dæminu við en misstum mann af velli og City nýtti sér það."
„Þeir sem sáu ekki leikinn halda kannski að City hafi verið miklu betra liðið. Lokatölurnar sýna ekki það sem átti sér stað inni á vellinum."



