Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
banner
   mið 22. febrúar 2012 22:23
Elvar Geir Magnússon
Zanetti: Inter átti ekki skilið að tapa
„Vonandi fer þessum neikvæða kafla að ljúka," segir Javier Zanetti, fyrirliði Inter. Ítalska liðinu hefur gengið mjög illa í síðustu leikjum og tapaði í kvöld 1-0 fyrir Marseille í fyrri leik liðanna í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar.

„Við erum mjög sárir og pirraðir yfir því hvernig ástandið er. Ég tel að við höfum spilað með karakter í kvöld en fengum á okkur mark með síðustu snertingu leiksins. Svona er fótboltinn. Við verðum bara að byrja upp á nýtt."

„Óheppni? Það var smá af öllu sem spilaði saman. Við áttum ekki skilið að tapa í kvöld en þetta var hluti af þessum neikvæða kafla sem við erum að ganga í gegnum."

Pressan eykst á Claudio Ranieri, þjálfara Inter.
Slapp
banner
banner