Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   fim 23. febrúar 2012 08:00
Elvar Geir Magnússon
Þjóðsöngvum sleppt á Wembley á sunnudaginn
Í fyrsta sinn í bikarúrslitaleik á Wembley verður ekki boðið upp á þjóðsöng á sunnudaginn. Þá mætast Liverpool og Cardiff í úrslitum deildabikarsins.

Cardiff er frá Wales og vilja æðstu menn ekki að baulað verði meðan þjóðsöngvarnir verða spilaðir.

Þegar Portsmouth og Cardiff léku til úrslita í FA-bikarnum 2008 bauluðu stuðningsmenn Cardiff meðan enski þjóðsöngurinn var spilaður og öfugt.

Ef Cardiff vinnur leikinn á sunnudag fær liðið Evrópusæti fyrir hönd Englands þrátt fyrir að vera frá Wales. Liverpool fær auðvitað Evrópusæti með sigri en ef liðið endar í einu af fimm efstu sætum úrvalsdeildarinnar að auki mun Evrópusætið fara til þess liðs sem endar í sjötta sæti úrvalsdeildarinnar.
Slapp
banner