Heimild: The Sun
Enska götublaðið The Sun segir frá því í morgun að Chelsea sé að íhuga að selja Ashley Cole eftir að bakvörðurinn reifst við knattspyrnustjórann Andre Villas-Boas.
„Þegar leikmenn efast um stjórann þá efast þeir um dómgreind eigandans," sagði heimildarmaður The Sun innan herbúða Chelsea
„Þegar leikmenn efast um stjórann þá efast þeir um dómgreind eigandans," sagði heimildarmaður The Sun innan herbúða Chelsea
Eigandi Chelsea, Roman Abramovic, valdi sjálfur Andre Villas-Boas til að stýra liðinu.
Illa hefur gengið hjá Chelsea að undanförnu en athygli vakti að Villas-Boas byrjaði leikinn gegn Napoli í vikunni með Cole, Frank Lampard og Michael Essien á bekknum. Sagan segir að allir þrír hafi gagnrýnt aðferðir stjórans portúgalska.
„Ég kom hingað til að vinna titla en mun aldrei gera það með þínum leikáætlunum," er meðal þess sem Cole á að hafa sagt við Villas-Boas.



