Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   fim 23. febrúar 2012 08:59
Anton Ingi Leifsson
Heimild: Sky Sports 
Mancini: Ánægður með frammistöðuna
Roberto Mancini, stjóri Manchester City, var gífurlega ánægður með sína menn í leiknum gegn Porto í gærkvöldi í Evrópudeildinni.

City vann fyrri leik liðanna 2-1, en lokatölur í síðari leiknum 4-0 og komust City-menn þá nokkuð auðveldlega áfram í 16-liða úrslitin

,,Þetta er gott kvöld - Porto er eitt af bestu liðum í Evrópu og spiluðu mjög vel. Ég er mjög ánægður með leik okkar og okkur langar í úrslitin en það er erfitt með lið eins og United, Valencia og Schalke í keppninni, þetta er eins og Meistaradeildin."

,,Að fá mark snemma var mikilvægt því Porto spilaði mjög vel, þeir eru gott lið. Porto var mikið með boltann og það er ekki auðvelt að spila gegn þeim. Við fengum fleiri færi til að skora, en þegar þú skorar ekki gætiru lent í vandræðum," sagði Mancini og bætti svo við að lokum:

,,Við spiluðum vel. Kannski var 4-0 of mikið, en það var mikilvægast að komast í næstu umferð. Við viljum komast í úrslitin."

Áhugavert verður að sjá hverjum City mætir í næstu umferð, en mörg sterk lið eru enn í keppninni eins og Mancini bendir réttilega á.

Slapp
banner
banner
banner