Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
banner
   fim 23. febrúar 2012 09:30
Hafliði Breiðfjörð
Heimild: BBC 
Frank Lampard á leið til PSG
Powerade
Þá er komið að daglegum slúðurpakka í boði Powerade en þar er búið að taka saman helsta slúðrið úr ensku götublöðunum.

Zenit St. Petersburg segist eiga í viðræðum við Arsenal um að fá Andrey Arshavin á láni. (Sovetsky Sport)

Frank Lampard miðjumaður Chelsea er á leið til Partis Saint Germain í Frakklandi þar sem hann hittir fyrir Carlo Ancelotti fyrrverandi stjóra Chelsea. (Daily Mirror)

Ashley Cole bakvörður Chelsea mun fara frá félaginu eftir að hafa lent upp á kant við Andre Villas-Boas stjóra liðsins. (The Sun)

Arsenal ætlar að eyða 55 milljónum punda í Þjóðverjana Mario Götze og Lukas Podolski í sumar. (Bild)

Juventus er talið hafa sett saman fjögurra ára samning fyrir Paul Pogba, 18 ára miðjumann Manchester United. (Daily Mail)

Sunderland þarf að berjast við Seville og Saint Etienne um Moussa Kone miðjumann Atalanta en hann hefur vakið athygli á láni hjá Pescra í ítölsku B-deildinni á tímabilinu. (talkSPORT)

Al Ain hefur hvatt Sunderland til að selja sér Asamoah Gyan sem er á láni hjá þeim en kaupverðið er 6 milljónir punda ofan á þær 6 milljónir sem þeir borguðu fyrir að fá hann á láni. (Daily Mirror)

AC Milan mun berjast við Manchester United um að ná í Javi Garcia miðjumann Benfica en Spánverjinn kostar 17 milljónir punda. (talkSPORT)

Mathieu Manset framherji Reading mun ganga til liðs við Nicolas Anelka og félaga í Shanghai Shenhua. (Daily Mail)

Chelsea hefur rætt við Rafael Benítez um að taka við af Andre Villas-Boas sem knattspyrnustjóri liðsins. (Times)

Tottenham vonast til að fá Harry Redknapp til að hafna því að taka við enska landsliðinu með því að bjóða honum spennandni samning. (Daily Mirror)

Wolves mun snúa sér að Walter Smith fyrrverandi stjóra Rangers til að taka við knattspyrnustjórastöðunni eftir að þeim mistókst að fá Alan Curbishley og Brian McDermott. (Daily Mirror)
Slapp
banner
banner
banner