Heimild: Sky
Xherdan Shaqiri kantmaður Basel í Sviss gagnrýndi Manchester United í fjölmiðlum í dag fyrir hvernig liðið féll úr keppni í Meistaradeild Evrópu eftir 2-1 tap gegn Basel rétt fyrir jól. Basel komst á kostnað þeirra í 16 liða úrslitin en Man Utd fór í Evrópudeildina.
Basel er komið áleiðis í átta liða úrslitin eftir að hafa unnið 1-0 sigur á Bayern Munchen í fyrri leik liðanna í 16 liða úrslitunum.
Shaqiri var ekki hrifinn af frammistöðu Manchester United þegar liðin mættust í síðasta leik riðlakeppninnar í desember og sagði:
,,United vanmátu okkur. Það mátti skynja það í göngunum og meira að segja í upphituninni," sagði Shaqiri sem er tvítugur og hefur þegar samið um að ganga til liðs við Bayern Munchen í sumar.
,,Þeir voru ekki alveg einbeittir og ég er ekki viss um að nokkur United leikmaður hafi tekið sprett í leiknum."
,,Eftir leikinn var ekki einu sinni hægt að skiptast á treyjum við þá, þeir voru farnir það fljótt."


