Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
banner
   fim 23. febrúar 2012 10:30
Elvar Geir Magnússon
Ungverjaland í heimsókn í júní
Frá landsleik við Ungverjaland 2005.
Frá landsleik við Ungverjaland 2005.
Mynd: Fótbolti.net - Ómar Vilhelmsson
Karlalandslið Íslands og Ungverjalands munu mætast í vináttulandsleik á Laugardalsvelli, mánudaginn 3. júní 2013.

Þessi leikur er hluti af samkomulagi knattspyrnusambanda Íslands og Ungverjalands sem gert var á síðasta ári en þá mættust þjóðirnar í vináttulandsleik ytra þar sem Ungverjar fóru með sigur af hólmi.

Ungverjaland er í 37. sæti á styrkleikalista FIFA.

Sem kunnugt er leikur íslenska karlalandsliðið vináttulandsleik gegn Japan á morgun, föstudaginn 24. febrúar, sem hefst kl. 10:20 að íslenskum tíma. Leikurinn verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport.

Að auki hafa þrír aðrir vináttulandsleikir verið skipulagðir á árinu. Næsta miðvikudag verður leikið gegn Svartfjallalandi og Frakkar og Svíar verða heimsóttir í lok maí.
Slapp
banner
banner
banner
banner