Heimild: Sky
Joleon Lescott miðvörður Manchester City fagnar endurkomu Carlos Tevez til félagsins og telur að hann geti bara hjálpað liðinu en ekki skemmt fyrir.
Tevez hefur verið lengi í burtu frá félaginu eftir að hann neitaði að hita upp í leik í Meistaradeildinni á síðasta ári. Hann baðst formlega afsökunar í vikunni og Roberto Mancini knattspyrnustjóri tók afsökunarbeiðninni.
Þeir munu svo hittast í dag og hrenisa loftið og í kjölfarið verður Tevez væntanlega í myndinni fyrir val í aðalliðið innan þriggja vikna.
,,Það lítur enginn hérna á Carlos sem truflun," sagði Lescott. ,,Ef við róum allir í sömu átt er ég viss um að það verður jákvætt fyrir félagið."
,,Með okkur hefur Carlos aldrei verið neitt vandamál og við erum vissir um að ef hann fær tækifærið þá muni hann skora fullt af mörkum."
Menn hafa óttast hvernig stuðningsmennirnir muni taka Tevez þegar hann snýr aftur og hvort þeir muni taka honum illa. Lescott vonast eftir góðum viðbrögðum.
,,Það væri of harkalegt. Menn verða að meta það sem Carlos hefur gert fyrir félagið undanfarin tvö ár. Auðvitað hefur Carlos ekki verið herna undanfarna mánuði en það er mál sem félagið hefur tekið á."
,,Við teljum að allir sem komu að því hafi tekið rétt á þessu og leikmennirnir hafa haldið áfram með sitt. Við erum enn að standa okkur í úrvalsdeildinni og ég sé ekki hvernig það hefur áhrif á okkur í lokin."
,,Það hafa komið stundir þar sem við hefðum getað notað hann, hann er gæða leikmaður, svo meira að segja þegar við vorum að vinna afskrifaði hann enginn og hugsaði: 'Nei, við þurfum hann ekki lengur'."


