Japan - Ísland (Beint á Stöð 2 Sport föstudag kl: 10:20)
Þeir sem hafa mikla trú á íslenska landsliðinu á morgun í vináttulandsleiknum gegn Japan gætu grætt væna upphæð ef Lars Lagerback og félagar sækja sigur til Osaka.
Erlendir veðbankar telja sigur Japana vísan á morgun en Íslendingar eru með allt uppí 11 í stuðul. Stuðullinn á sigur heimamanna er öllu lægri eða í kringum 1,30.
Erlendir veðbankar telja sigur Japana vísan á morgun en Íslendingar eru með allt uppí 11 í stuðul. Stuðullinn á sigur heimamanna er öllu lægri eða í kringum 1,30.
Ekki er um alþjóðlegan leikdag að ræða. Japanski hópurinn er því eingöngu skipaður leikmönnum sem spila í J-deildinni í Japan.
Að sama skapi inniheldur íslenski hópurinn leikmenn sem spila í Pepsi-deildinni og í Skandinavíu. Elfar Freyr Helgason, leikmaður AEK Aþenu, er þó undantekning á því.
Leikurinn á morgun hefst klukkan 10:20 að íslenskum tíma og verður sýndur beint á Stöð 2 Sport.

