Heimild: AP
Stuart Pearce, bráðabirgðaþjálfari enska landsliðsins, tilkynnti í morgun landsliðshópinn sem etur kappi við Holland í vináttulandsleik á Wembley næsta miðvikudag. Pearce valdi unga leikmenn í hópinn og gefur mönnum tækifæri sem eru að banka á dyr landsliðsins.
Pearce er þjálfari U21-landsliðs Englands og einnig Ólympíulandsliðsins. Hann segist vera tilbúinn að stýra Englandi á Evrópumótinu í Póllandi og Úkraínu í sumar ef illa gengur að finna þjálfara í staðinn fyrir Fabio Capello.
Pearce er þjálfari U21-landsliðs Englands og einnig Ólympíulandsliðsins. Hann segist vera tilbúinn að stýra Englandi á Evrópumótinu í Póllandi og Úkraínu í sumar ef illa gengur að finna þjálfara í staðinn fyrir Fabio Capello.
„Ég hef þjálfað á stórmóti ef þeir þurfa á kröftum mínm að halda í sumar. Ég myndi taka þetta verkefni að mér með ánægju," segir Pearce sem heldur um stjórnartaumana á meðan enska knattspyrnusambandið leitar að þjálfara.
Harry Redknapp er talinn líklegastur til að taka við Englandi en lið hans Tottenham er í baráttu um Englandsmeistaratitilinn. Tímabilinu á Englandi lýkur mánuði áður en landsliðið á fyrsta leik á Evrópumótinu.
Pearce valdi leikmenn í hópinn gegn Hollandi sem hann hefur unnið með í U21-liðinu. Þar á meðal Fraizer Campbell. Þessi sóknarmaður Sunderland er í fyrsta sinn valinn í A-landsliðið. Aðrir sóknarmenn í hópnum eru Wayne Rooney, Darren Bent, Danny Welbeck og Daniel Sturridge.
Gera má ráð fyrir því að Steven Gerrard verði fyrirliði gegn Hollandi þar sem Rio Ferdinand og Frank Lampard eru hvorugir í hópnum.



