Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
banner
   fim 23. febrúar 2012 13:25
Elvar Geir Magnússon
Þorsteinn Már löglegur með KR í kvöld
Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson
Þorsteinn Már Ragnarsson hefur fengið leikheimild með KR og verður því löglegur með liðinu í kvöld þegar það mætir Fram í Lengjubikarnum klukkan 19 í Egilshöll.

Þessi ungi sóknarmaður kom til KR frá Víkingi Ólafsvík í vetur. Þau félagaskipti gerðu það að verkum að hann var valinn í íslenska U21-landsliðið á dögunum.

Þeir leikmenn sem hafa skipt erlendis frá eru orðnir löglegir frá og með deginum í dag. Þorsteinn lék með norska félaginu Raufoss IL í haust á lánssamningi frá Ólafsvíkurliðinu

Sóknarmaðurinn Atli Heimisson hjá Val er einnig orðinn löglegur en óvíst er þó hvort hann verði með gegn Fjölni í Lengjubikarnum í kvöld þar sem hann hefur verið að glíma við meiðsli. Atli kom til Vals í vetur frá norska liðinu Asker.

Meðal annarra leikmanna sem nú eru orðnir löglegir eru Guðjón Pétur Lýðsson í Val, Guðmann Þórisson í FH, Gary Martin í ÍA, Garðar Gunnlaugsson í ÍA, Ármann Smári Björnsson í ÍA, Robert Sandnes í Selfossi, Ingimundur Níels Óskarsson í Fylki og Marko Valdimar Stefánsson í Grindavík.
Slapp