Hall vill fara til Man Utd - Líka áhugi Man Utd á Robinson - Mourinho vill fá Gvardiol frá City
   fim 23. febrúar 2012 21:35
Sebastían Sævarsson Meyer
Championship: Leicester lagði Derby
Derby County 0 - 1 Leicester City
0-1 Neil Danns ('16 )

Einn leikur var á dagskrá í ensku Championship deildinni í kvöld þegar Derby tók á móti Leicester.

Leicester tryggði sér sæti í 8-liða úrslitum enska bikarsins um síðustu helgi og fagnaði aftur sigri í kvöld með því að leggja Derby af velli með einu marki gegn engu.

Neil Danns skoraði eina mark leiksins þegar rúmur stundarfjórðungur var liðinn af leiknum og tryggði sínum mönnum þrjú stig.

Bæði lið sigla lignan sjó um miðja deild, Leicester er í 12. sæti en Derby er í 15. sæti.
Slapp
banner