Hall vill fara til Man Utd - Líka áhugi Man Utd á Robinson - Mourinho vill fá Gvardiol frá City
   fim 23. febrúar 2012 22:41
Sebastían Sævarsson Meyer
Evrópudeildin: Man Utd áfram þrátt fyrir tap á Old Trafford
32-liða úrslitum Evrópudeildarinnar er nú lokið en Schalke sigraði Viktoria Plzen 3-1 eftir framlengdan leik nú rétt í þessu og komst þar með áfram í 16-liða úrslitin. Klaas Jan Huntelaar fór á kostum og skoraði öll þrjú mörk Schalke.

Manchester United fór áfram í næstu umferð þrátt fyrir 1-2 tap gegn Ajax á Old Trafford. Fyrri viðureign liðanna endaði með 2-0 sigri Englandsmeistarana og því sluppu þeir með naumindum í 16-liða úrslitin.

Javier Hernnadez kom Manchester United yfir snemma leiks og gerði nánast út um vonir Ajax manna sem þó klóruðu í bakkann með tveimur mörkum. Það færðist spenna í leikinn á 88 mínútu þegar Ajax skoraði sitt annað mark en nær komst Ajax ekki.

Jóhann Berg Guðmundsson sat allan tíman á varamannabekk AZ Alkmaar sem sigraði Anderlecht með einu marki gegn engu og fór því áfram í næstu umferð þar sem fyrri viðureign liðanna lauk einnig með 1-0 sigri hollenska liðsins.

Atletico Madrid fór örugglega áfram með samanlögðum 4-1 sigri á Lazio og Olympiakos sló út Rubin Kazan.

Þá fóru Besiktas, Metallist og Sporting öll áfram í næstu umferð.

Besiktas 0 - 1 Braga (Samanlagt: 2-1)
0-1 Lima ('25 )

Olympiakos 1 - 0 Rubin Kazan (Samanlagt: 2-0)
1-0 Rafik Djebbour ('14 )

Manchester United 1 - 2 Ajax (Samanlagt: 3-2)
1-0 Javier Hernandez ('6 )
1-1 Araz Ozbiliz ('37 )
1-2 Toby Alderweireld ('88)

Metallist 4 - 1 Salzburg (Samanlagt: 7-1)
1-0 Martin Hinteregger ('28 , sjálfsmark)
1-1 Jakob Jantscher ('56 )
2-1 Jonathan Cristaldo ('62 )
3-1 Sebastian Blanco ('63 )
4-1 Marlos ('87)

Anderlecht 0 - 1 AZ Alkmaar (Samanlagt: 0-2)
0-1 Maarten Martens ('54 )

Atletico Madrid 1 - 0 Lazio (Samanlagt: 4-1)
1-0 Diego Roberto Godin ('48 )

Schalke 3 - 1 Viktoria Plzen (Samanlagt: 4-2 eftir framlengingu)
1-0 Klaas Jan Huntelaar ('8 )
1-1 Frantisek Rajtoral ('88)
2-1 Klaas Jan Huntelaar ('106)
3-1 Klaas Jan Huntelaar ('120)
Rautt spjald:Marek Bakos, Plzen ('61)

Sporting 1 - 0 Legia (Samanlagt: 3-2)
1-0 Matias Fernandez ('84)
Slapp
banner
banner