Hall vill fara til Man Utd - Líka áhugi Man Utd á Robinson - Mourinho vill fá Gvardiol frá City
   fim 23. febrúar 2012 22:41
Sebastían Sævarsson Meyer
Evrópudeildin: Ljóst hvaða lið mætast í 16-liða úrslitum
Þar sem 32-liða úrslitum Evrópudeildarinnar lauk í kvöld er ljóst hvaða lið mætast í næstu umferð.

Manchester United mætir Athletic Bilbao og Manchester City mun etja kappi við Sporting frá Lisabon. Þetta eru verðug verkefni fyrir Manchester-liðin sem eru einu liðin eftir í keppninni frá Englandi.

Jóhann Berg Guðmundsson og félagar í AZ Alkmaar mæta Udinese og Birkir Bjarnason í liði Standard Liege mætir Hannover.

Hér að neðan má sjá hvaða lið mætast en fyrri leikirnir fara fram 8. mars og viku síðar eru seinni leikirnir á dagskrá.

16-liða úrslit:
Manchester United - Athletic Bilbao
Sporting Lisabon- Manchester City
Metalist Kharkiv - Olympiakos
Twente - Schalke
Standard Liege - Hannover
Valencia - PSV
AZ Alkmaar - Udinese
Atletico Madrid - Besiktas

Slapp
banner