Hall vill fara til Man Utd - Líka áhugi Man Utd á Robinson - Mourinho vill fá Gvardiol frá City
banner
   fim 23. febrúar 2012 23:03
Hafliði Breiðfjörð
Lengjubikarinn: Hörður skoraði tvö fyrir Val í sigri á Fjölni
Valur 4-2 Fjölnir
0-1 Illugi Gunnarsson ('3)
0-2 Illugi Gunnarsson ('8)
1-2 Hafsteinn Briem ('23)
2-2 Hörður Sveinsson ('27)
3-2 Hilmar Rafn Emilsson
4-2 Hörður Sveinsson

Valur vann góðan sigur á Fjölni í Lengjubikarnum í kvöld og unnu 4-2 þrátt fyrir að hafa lent tveimur mörkum undir í upphafi leiks.

Fjölnismenn komust yfir strax á þriðju mínútu. Ásgeir Þór Magnússon markvörður Vals tók boltann þá með höndum eftir sendingu til baka og Fjölnismenn fengu óbeina aukaspyrnu inni í teignum. Þeir tóku hana hratt og Illugi Gunnarsson fékk sendingu og setti í tómt markið.

Illugi bætti svo við öðru marki fimm mínútum síðar. Hann var þá með boltann fyrir utan vítateiginn og lét skyndilega vaða beint upp í samskeytin.

Hafsteinn Briem minnkaði svo muninn fyrir Val um miðjan fyrri hálfleikinn með skalla en hann lenti í samstuði við markvörð Fjölnis í leiðinni og lá í skamma stund en hélt svo leik áfram.

Hörður Sveinsson jafnaði svo metin á 27. mínútu eftir klaufagang h já markmanni og vörn Fjölnis og meira var ekki skorað í fyrri hálfleik, staðan 2-2.

Í síðari hálfleik tryggði Valur sér sigur með tveimur mörkum. Fyrst skoraði Hilmar Rafn Emilsson og svo skoraði Hörður Sveinsson sitt annað mark eftir fyrirgjöf varamannsins Kolbeins Kárasonar frá vinstri.

Valur er með fjögur stig eftir að hafa gert jafntefli við Fylki í fyrsta leik sínum en Fjölnir enn með eitt stig sem þeir fengu í jafntefli gegn Leikni.
Slapp
banner
banner
banner