Sir Alex Ferguson sagði að það hafi verið áhætta að tefla fram ungu liði í kvöld þegar Manchester United tók á móti Ajax í kvöld.
Ajax fór með 2-1 sigur af hólmi í síðari leik liðanna í 32-liða úrslitum Evrópudeildarinnar en Man Utd slapp þó með skrekkinn og fór áfram eftir samanlagðan 3-2 sigur.
Ajax fór með 2-1 sigur af hólmi í síðari leik liðanna í 32-liða úrslitum Evrópudeildarinnar en Man Utd slapp þó með skrekkinn og fór áfram eftir samanlagðan 3-2 sigur.
Bræðurnir Rafael og Fabio voru í vörninni ásamt Phil Jones og Chris Smalling og Tom Cleverley var á miðjunni.
,,Ég er ábyrgur fyrir liðsvalinu og ég tefldi fram of mörgum ungum leikmönnum í vörnina í kvöld,” sagði Ferguson.
,,Þetta var of mikil áhætta. Ajax er frábært lið og heldur boltanum virkilega vel, við náðum bara einu skoti á markið í seinni hálfleik.
Manchester United mætir Athletic Bilbao í 16-liða úrslitunum.




