,,Það er leiðinlegt að tapa fótboltaleikjum. Við erum búnir að tapa þremur leikjum á móti Fram á þessu ári af sjö leikjum sem við erum búnir að spila," sagði Rúnar Kristinsson þjálfari KR eftir 2-1 tap gegn Fram í Lengjubikarnum í kvöld.
,,Þetta er mjög slæmt. Það eru sennilega fleiri leikir sem við töpuðum á þessum tveimur mánuðum en meira og minna allt árið í fyrra. En við erum samt að bæta okkar leik í dag frá því við lékum við þá síðast."
,,Mér fannst við vera mun betri en þá en úrslitin féllu ekki með okkur í dag, þau féllu Fram megin. Þeir voru bara góðir. Við getum ekki sagt að þeir hafi átt sigurinn skilinn en þetta var jafn leikur."
KR tapaði 5-0 síðast þegar liðin áttust við og greinilegt að liðið var búið að bæta sig síðan þá.
,,Við löguðum aðeins hugarfarið og vinnusemina í liðinu. Hún var miklu betri í dag. En það er langt mót og við erum að reyna að laga það sem við þurfum að laga og bæta það sem þarf að bæta."
,,Við nýtum þennan tíma vonandi vel til að komast í gott stand. En ég er aldrei sáttur við að tapa, hundfúll að tapa en ég sá fullt af góðum hlutum í liðinu í dag."
Nánar er rætt við Rúnar í sjónvarpinu hér að ofan.























