Heimild: Sporting Life
Lífið er ekki alltaf dans á rósum þegar maður er knattspyrnustjóri Blackburn Rovers og því hefur Steve Kean fengið að kynnast. Stuðningsmennirnir eru ósáttir við að hann skuli enn vera í starfi og nú hefur hann þurft að ráða lífvörð til að fylgja sér um allt.
,,Mér var ráðlagt að hagsmunum mínum væri best borgið með því að hafa alltaf einhvern með mér," sagði Kean við Times.
,,Ég var á veitingastað með konunni og börnunum fyrir nokkrum mánuðum og við fengum textaskilaboð frá vini um að fara varlega."
,,Það var ýmislegt á gangi á Twitter um hóp aðgerðarsinna sem höfðu nefnt veitingastaðinn svo fólk gæti farið og hitt á mig. Ég sýndi konunni skilaboðin og við ákváðum að fara strax."
,,Við sögðum börnunum þetta ekki því við vildum ekki hræða þau. Við sögðum bara að það væri góður staður rétt hjá sem við ættum að fá okkur búðing á. Náundinn sem verndar mig er með sjöunda stig í karate, en hann er ekki stór og mikill eða neitt. Hann veit hvernig hann á að taka á hlutunum."
,,Það er svolítið skrítið að vera með hann en það er gott líka. Það er mjög gaman að tala við hann til dæmis. Ég held að meirihluti stuðningsmannana sýni ástríðu en séu eki ofbeldisfullir, hvort sem það sé gagnvart mér eða öðrum. Ég held líka að flestir stuðningsmenn Blackburn styðji við bakið á mér. Samt er þetta óvenjulegt, ég get ekki neitað því."


