Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
banner
   fös 24. febrúar 2012 10:20
Hafliði Breiðfjörð
Heimild: BBC 
Nýr Suarez undir smásjá Barcelona og Arsenal
Powerade
Hér kemur daglegur slúðurpakki í boði Powerade en þar er búið að taka saman helsta slúðrið úr ensku miðlunum.

Emmanuel Adebayor vill vera áfram hjá Tottenham þegar lánssamningur hans frá Manchester City rennur út en til þess þyrfti Tottenham að rjúfa launaþakið. (London Evening Standard)

Chris Samban varnarmaður Blackburn hefur ekki gefið upp von um að fara til Anzhi Makhachkala áður en rússneski glugginn lokar á föstudaginn. (Daily Mail)

Andros Townsend kantmaður Tottenham er á leið til Birmingham á láni eftir að hafa hætt á láni hjá Leeds. (Daily Mirror)

Luka Modrid miðjumaður Tottenham mun ekki semja við félagið fyrr en framtíð Harry Redknapp ræðst. (Goal.com)

Igor Akinfeev sem Chelsea er á eftir útilokar að fara til enska félagsins. Þessi 25 ára markvörður CSKA Moskvu var hugsaður sem eftirmaður Petr Cech. (talkSPORT)

Arsenal ælar að bjóða 5 milljónir punda í Isco miðjumann Malaga. (Daily Star)

Newcstle United er talið fylgjast með Jan Vertonghen varnarmanni Ajax. (Newcastle Chronicle)

Newcastle hefur líka áhuga á Romain Amalfitano miðjumanni Reims í Frakklandi. (Daily Mirror)

Barcelona er komið í baráttu við Arsenal og Everton um að næla í Matias Suarez framherja Anderlecht. (Metro)

Andre Villas Boas stjóri Chelsea ætlar að bjóða Salomon Kalou framherja liðsins 80 þúsund pund á viku í nýjum samningi. (Daily Mail)

Jose Mourinho stjóri Real Madrid ætlar að gera lítið úr vonum Fulham um að fá Jese Rodriguez á láni því hann ætlar að taka þennan 18 ára leikmann í aðalliðið. (talkSPORT)

Gaston Ramirez miðjumaður Bologna er líklega á leið til Liverpool en forseti ítalska félagsins segir að hann megi fara í sumar. (Inside Futbol)

Roy Hodgson stjóri WBA mun reyna að fá Szabolcs Huszti kantmann Zenit St. Petersburg í sumar. (The Sun)

Roman Abramovich eigandi Chelsea heimtar að fá að vita afhverju Andre Villas-Boas stjóri liðsins ákvað að taka Ashley Cole, Frank Lampard og Michael Essien úr liðinu gegn Napoli í Meistaradeildinni, leik sem tapaðist 3-1. (The Sun)

Neil Warnock stjóri Leeds segir að hann muni hætta í fótbolta í lok leiktíðarinnar. (Daily Mirror)
Slapp
banner
banner