Heimild: BBC
Wolves hefur ráðið aðstoðarstjórann Terry Connor til að taka við knattspyrnustjórn liðsins til loka tímabilsins.
Félagið hafði rekið Mick McCarthy 13. febrúar, daginn eftir 5-1 tap gegn WBA og hefur verið stjóralaust síðan þá.
Nú hefur Wolves snúið sér að Connor eftir að Walter Smith, Alan Curbishley og Brian McDermott höfnuðu allir að taka við liðinu.
,,Þetta er mikilvægt skref sem mun gefa mönnum vissu. Leikmennirnir styðja þetta að fullu," sagði steve Morgan eigandi Wolves í dag.
,,Síðan við tókum þá erfiðu ákvörðun að skilja við Mick höfum við verið iðnir við að skoða mögleika eftirmenn."
,,Eftir að hafa talað við marga höfum við lokið því ferli og ég og stjórnin erum einróma um að Terry sé rétti maðurinn til að leiða félagið út tímabilið."
,,Félagið, hvort sem það er starfsfólkið eða stuðningsmennirnir, verðum nú að standa að baki Terry og leikmönnunum og ná í eins mörg stig og mögulegt er í næstu 13 leikjum."
Connor hefur verið hjá Wolves í 13 ár og hefur verið aðstoðarmaður fjögurra stjóra. Þetta er í fyrsta sinn sem hann stýrir liðinu sjálfur.


