Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
banner
   fös 24. febrúar 2012 11:16
Elvar Geir Magnússon
Cleverley meiddur á ökkla - Dregur sig úr landsliðinu
Miðjumaðurinn Tom Cleverley hefur neyðst til að draga sig úr enska landsliðinu eftir að hafa meiðst á ökkla í 2-1 tapi Manchester United gegn Ajax í gær.

Meiðsli virðast elta Cleverley sem var nýkominn aftur eftir fjóra mánuði utan vallar vegna ökklameiðsla.

Hann var valinn í landsliðshóp Stuart Pearce fyrir vináttulandsleik gegn Hollandi á Wembley næsta miðvikudag.

Cleverley var skipt af velli fyrir Paul Scholes í seinni hálfleik í gær en þrátt fyrir tapið komst United í 16-liða úrslit Evrópudeildarinnar þar sem liðið vann fyrri leikinn 2-0.
Slapp
banner
banner