Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
banner
   fös 24. febrúar 2012 11:40
Elvar Geir Magnússon
Anzhi vill fá Chris Samba
Anzhi Makhachkala í Rússlandi vill fá varnarmanninn Chris Samba frá Blackburn. Viðræður eru í gangi samkvæmt frétt Guardian.

Samba er 27 ára og bað um að vera seldur frá Blackburn í janúar og reyndu QPR og Tottenham að fá hann.

Það er nóg til hjá Anzhi sem hefur innanborðs leikmenn á borð við Samuel Eto'o, Yuri Zhirkov og Roberto Carlos.

Samba hefur ekki spilað síðan í byrjun janúar, eftir að hann fór fram á sölu.
Slapp
banner
banner
banner