Fernando Torres, framherji Chelsea hefur misst sæti sitt í spænska landsliðinu en Vicente Del Bosque landsliðsþjálfari Spánar tilkynnti í dag að hann geti ekki verið annað en sanngjarn og skilið hann eftir þegar liðið mætir Venezuela í næsta leik.
Torres hefur átt mjög erfitt uppdráttar síðan hann gekk til liðs við Chelsea í janúar í fyrra og nú hefur hann fengið að gjalda fyrir slaka frammistöðu.
,,Hann er drengur sem við metum mikils og það tekur mig sárt að skilja hann eftir en ég vildi vera sanngjarn," sagði Del Bosque sem vildi verðlauna leikmenn sem hafa verið að standa sig vel.
Torres hefur aðeins skorað fjögur mörk í 29 leikjum fyrir Chelsea á tímabilinu og skoraði síðast 19. október þegar hann skoraði tvö gegn Genk í Meistaradeidlinni. Hanns koraði síðast í ensku úrvalsdelidinni fyrir fimm mánuðum í 4-1 sigri á Swansea og var rekinn af velli skömmu síðar.
Hann skoraði síðast í landsdsleik gegn Liechtenstein í september árið 2010 en þá skoraði hann tvö í 4-0 sigri. Síðan hefur hann spilað þrjá landsleiki án þess að skora.
Pedro leikmaður Barcelona missir einnig sæti sitt í landsliðinu að þessu sinni en hann hefur aðeins skorað eitt mark í níu leikjum með Barcelona á tímabilinu. Roberto Soldado framherji Valencia er hinsvegar valinn og sama má segja um Iker Muniain hjá Athletic Bilbao.
Hópurinn: Casillas (Real Madrid), Victor Valdes (Barcelona), Reina (Liverpool), Arbeloa (Real Madrid), Sergio Ramos (Real Madrid), Puyol (Barcelona), Pique (Barcelona), Javi Martinez (Athletic), Jordi Alba (Valencia), Iraola (Athletic), Xavi (Barcelona), Iniesta (Barcelona), Busquets (Barcelona), Fabregas (Barcelona), Xabi Alonso (Real Madrid), David Silva (Manchester City), Cazorla (Malaga), Navas (Sevilla), Mata (Chelsea), Thiago (Barcelona), Muniain (Athletic), Soldado (Valencia), Llorente (Athletic), Negredo (Sevilla).



