Heimild: Goal.com
Stuart Pearce sem stýrir enska landsliðinu tímabundið á meðan leitað er að eftirmanni Fabio Capello segir að hann hafi ekkert á móti Andy Carroll framherja Liverpool sem hann valdi ekki í vináttuleik gegn Hollandi á miðvikudag. Þess í stað valdi hann Fraizer Campbell framherja Sunderland.
Pearce hefur verið þjálfari U21 árs landsliðs Englendinga síðan árið 2007. Einhverjar hafa rifjað upp að Carroll fór ekki með Englendingum á Evrópumót U21 árs landsliða í fyrra en Pearce segir það ekki koma málinu við.
,,Það kom málinu ekkert við. Andy Carroll var meiddur síðasta sumar. Þess vegna gat hann ekki tekið þátt í U21 mótinu. Það var eina ástæða þess," sagði Pearce.
,,Það hafa verið fréttir um að ég hafi eitthvað á móti Andy sem er svo langt fjarri sanleikanum að það er ótrúlegt. Eina ástæðan fyrir því að ég valdi hann ekki er form hinna fjögurra sem ég valdi framyfir hann."
Carroll hefur skorað átta mörk fyrir Liverpool síðan hann var keyptur á 35 milljónir punda frá Newcastle fyrir ári síðan.
,,Mér finnst að Andy sé bara rétt að finna sitt gamla form núna. Mér finnst þó að þeir einstaklingar sem við völdum framyfir hann núna séu betri en hann sem stendur."



