Það er nóg um að vera í íslenska boltanum í dag, en leikið er í A-deild Lengjubikarsins þar sem öflugir leikir fara fram.
Fyrsti leikur dagsins verður leikinn í Fífunni í Kópavogi, en þar mætast Breiðablik og BÍ/Bolungarvík í riðli 1. Leikurinn verður háður klukkan 11:00, en Blikar eru með þrjú stig eftir sigur á Haukum síðustu helgi á meðan BÍ er með 0 stig eftir að hafa tapað fyrir Þrótturum.
Það fer þá fram heil umferð í riðli 2. Keflavík og Stjarnan mætast í Reykjaneshöllinni klukkan 12:00 áður en nýliðar ÍA í Pepsi-deildinni fá Eyjamenn í heimsókn á Akranes klukkan 14:00.
Víkingur R. og Tindastóll mætast þá í Egilshöll klukkan 17:00 áður en KA og ÍR spila í Boganum á Akureyri klukkan 17:15.
Fylkir og Þór mætast síðan í riðli þrjú í Egilshöll klukkan 15:00, en hér að neðan má sjá alla leikina og tímasetningar.
Leikir dagsins:
Riðill 1:
11:00 Breiðablik - BÍ/Bolungarvík (Fífan)
Riðill 2:
12:00 Keflavík - Stjarnan (Reykjaneshöllin)
14:00 ÍBV - ÍA (Akraneshöllin)
17:00 Víkingur R. - Tindastóll (Egilshöll)
17:15 KA - ÍR (Boginn)
Riðill 3:
15:00 Fylkir - Þór (Egilshöll)
Síldarvinnslumótið:
12:00 Fjarðabyggð - Sindri (Fjarðabyggðarhöllin)
Veistu um æfingaleiki framundan?
Auk ofangreindra leikja gæti verið um einhverja æfingaleiki að ræða sem við vitum ekki um. Við hvetjum fólk til að senda okkur ábendingar um æfingaleiki sem framundan eru og við munum koma þeim á framfæri morgun þess dags sem leikurinn fer fram. Sendið slíkar ábendingar á [email protected].


