Heimild: BBC
Goran Stevanovic, þjálfari Gana hefur uppljóstrað alvarlegt leyndarmál innan herbúða liðsins, en hann segir leikmenn nota svarta galdur gegn hvor öðrum.
Gana féll úr leik á Afríkumótinu í undanúrslitum gegn Sambíu, sem endaði á því að vinna keppnina, en Gana var spáð því að komast í úrslit og voru því vonbrigði fyrir þjóðina er í ljós kom að liðið færi ekki þangað.
Serbneski þjálfarinn Stevanovic segir að leikmenn hafi notað svarta galdur gegn hvor öðrum til þess að eiga meiri von á að sanna sig á mótinu og hugsa um eigin skinn til þess að ná frama.
Afrísku liðin eru oft með galdramenn á sínum snærum til þess að ná fram lukku á vellinum og vernda leikmenn, en svo virðist sem leikmenn Gana hafi ákveðið að snúa dæminu örlítið við.
,,Við þurfum allir að hjálpast að við að breyta hugarfari leikmanna í liðinu og sjá til þess að þeir noti ekki svarta galdur til þess að eyðileggja aðra leikmenn. Við þurfum einnig að sýna aga og virðingu," sagði Stevanovic.
Sarfo Gyami, fyrrum leikmaður Gana segir ástandið vera virkilega slæmt þegar leikmenn eru farnir að nota þetta gegn hvor öðrum.
,,Þetta hefur alltaf verið í boltanum, en þá hafa leikmenn notað það sér til verndar og í leit að heppni. Ég hef aldrei heyrt um tilvik þar sem leikmenn nota þetta gegn liðsfélögum sínum, það er virkilega slæmt ástand," sagði hann.

