Heimild: Heimasíða Keflavíkur
Brynjar Örn Guðmundsson, leikmaður Keflavíkur í Pepsi-deildinni hefur ákveðið að leggja skóna á hilluna.
Brynjar, sem er 29 ára gamall lék upp alla yngri flokka Keflavíkur með liðinu og spilaði sinn fyrsta meistaraflokksleik með liðinu árið 2001. Hann söðlaði síðan um árið 2004 og skipti yfir í Reyni Sandgerði þar sem hann lék til 2008.
Árið 2008 samdi hann aftur við Keflavík og hefur leikið með þeim síðan, en hann á að baki 77 opinbera leiki fyrir félagið og tvö mörk. Þá lék hann 35 leiki með liðinu í deildarbikarnum á ferli sínum.
Frá þessu var greint á heimasíðu Keflavíkur, en þar þakkar félagið leikmanninum kærlega fyrir samveruna og óskar honum góðs gengis í því sem hann tekur sér fyrir hendur.





