Heimild: Blikar.is
Reynir Magnússon, leikmaður Breiðabliks hefur verið lánaður í fyrstu deildina, þar sem hann kemur til með að leika með ÍR út tímabilið.
Reynir, sem er 19 ára gamall varnarmaður gekk upp úr öðrum flokki Breiðabliks eftir sumarið, en hann hefur verið viðloðinn meistaraflokk félagsins undanfarin þrjú ár.
Hann á að baki tvo leiki í Pepsi-deildinni með Blikum, en hann hefur nú verið lánaður í Breiðholtið þar sem hann mun leika með ÍR-ingum í fyrstu deildinni í sumar.
Hann er annar leikmaðurinn sem ÍR fær til sín á stuttum tíma, en liðið fékk Atla Guðjónsson frá BÍ/Bolungarvík síðustu helgi.



