Jose Mourinho, þjálfari Real Madrid á Spáni var gripinn glóðvolgur á dögunum þar sem hann lét út úr sér slæm ummæli í garð samkynhneigðra á æfingu liðsins.
Mourinho var mættur á mánudag á Luzhniki leikvanginn, heimavöll CSKA Moskvu fyrir leik liðsins gegn Madrid, en þar fór hann að sýna listir sínar með boltann og taka vítaspyrnur með meiru.
Það dró þó ekki athygli fjölmiðla, heldur voru það orð hans fyrir listirnar sem þóttu fyrir neðan allar hellur. Hann lét þá falla hörð orð í garð samkynhneigðra, en þar sagði hann ,,Þessir fag*ar...svo segja þeir að þið getið ekki spilað bolta,". Á spænsku hljómaði þetta svona ,,Y esos maricones... No dicen con que balón se juega".
Ravel Morrison, leikmaður West Ham United var á dögunum refsað fyrir ummæli í garð samkynhneigðra en enska knattspyrnusambandið á eftir að ákveða refsingu hans.
FIFA og UEFA eru í herferð bæði gegn rasisma í knattspyrnunni og eru að reyna að vinna gegn fordómum í garð samkynhneigðra, en óvíst hvort portúgalski þjálfarinn fái refsingu fyrir atvikið. Hægt er að sjá myndbandið af ummælunum hér að neðan, en þau koma á 20 sekúndu.
