Hall vill fara til Man Utd - Líka áhugi Man Utd á Robinson - Mourinho vill fá Gvardiol frá City
banner
   lau 25. febrúar 2012 08:30
Brynjar Ingi Erluson
Heimild: Sky 
Anthony Gerrard: Tækla Steven ef við mætumst
Anthony Gerrard, leikmaður Cardiff City á Englandi segist ætla að tækla frænda sinn hjá Liverpool, Steven Gerrard ef þeir mætast í einvígi í úrslitaleik deildabikarsins á morgun.

Anthony, sem er 26 ára gamall spilaði á sínum yngri árum með Everton frá Liverpoolborg áður en hann gekk til liðs við Walsall árið 2005. Hann samdi svo við Cardiff City árið 2009 en á síðasta tímabili var hann á láni hjá Hull City.

Hann hefur leikið 23 leiki með Cardiff á þessu tímabili, en það kemur í ljós á morgun hvort hann fái að mæta frænda sínum í úrslitaleik deildabikarsins sem fer fram á Wembley.

,,Ef ég mæti Steven, maður á mann og við erum yfir í leiknum á loka mínútu leiksins þá yrði ég að taka hann niður," sagði Anthony.

,,Hann er þegar með alltof margar medalíur og núna er mitt tækifæri komið og þá ætla ég að grípa það," sagði hann að lokum.
Slapp
banner
banner