ÍA sigraði lið Tindastól með fimm mörkum gegn engu í Akraneshöllinni í gær, en liðin undirbúa sig af krafti fyrir sumarið.
ÍA sigraði B-deild Faxaflóamótsins á dögunum og þær héldu uppteknum hætti í gær þegar liðið vann fimm marka sigur. Unnur Haraldsdóttir og Eyrún Eiðsdóttir skoruðu sitthvort tvö mörkin og þá skoraði Guðrún Karítas Sigurðardóttir eitt mark.
ÍA 5-0 Tindastóll
Mörk ÍA:
Unnur Haraldsdóttir 2
Eyrún Eiðsdóttir 2
Guðrún Karítas Sigurðardóttir 1
Veistu úrslit úr æfingaleikjum?
Ef þú hefur upplýsingar um úrslit æfingaleikja og markaskorara endilega sendu okkur þá tölvupóst á [email protected] eða settu úrslitin á Twitter og merktu #fotboltinet



