Hall vill fara til Man Utd - Líka áhugi Man Utd á Robinson - Mourinho vill fá Gvardiol frá City
   lau 25. febrúar 2012 09:30
Brynjar Ingi Erluson
Heimild: Goal.com 
Gago nálægt því að semja við Roma
Fernando Gago, leikmaður AS Roma á Ítalíu er nálægt því að ganga frá fjögurra ára samning við félagið, en þetta er haft eftir ítölskum fjölmiðlum.

Argentíski leikmaðurinn er á láni hjá ítalska félaginu frá spænska stórveldinu Real Madrid, en hann hefur heldur betur fundið sig hjá Roma á þessu tímabili þar sem hann hefur spilað 18 leiki og verið lykilmaður í liði Luis Enrique í vetur.

Roma vill ganga frá kaupunum á leikmanninum sem allra fyrst, en talið er að hann sé nálægt því að skrifa undir fjögurra ára samning við félagið þar sem laun hans koma til með að þrefaldast í leiðinni.

Hann var þá valinn aftur í argentíska landsliðið að nýju á dögunum, en hann á að baki 35 leiki fyrir Argentínu.
Slapp
banner
banner