Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
Glódís hreinskilin: Veit ekki hvernig þetta umspil virkar
Diljá Ýr: Ennþá með sama markmið
HM Álitið: Hvaða leikmaður springur út?
HM Álitið: Hverjir verða spútnik liðið?
„Kom mér lítið á óvart að hafa fengið þetta tækifæri“
HM Álitið: Hvaða lið vinnur mótið?
Munur á Spáni og Íslandi - „Gylfi Sig á miðjunni og einhver rafvirki í vinstri bakverði“
Tómas Bent fer yfir tímabilið í Skotlandi - „Ákveðin pyntingaraðferð“
HM Álitið: Hver verður efnilegastur?
Þekkir að spila yfir sumarið í Bandaríkjunum - „Held það sé enginn líkami sem geti vanist því"
„Ekki jafn frjálst og á Íslandi, sérstaklega ef maður var í KR“
HM Álitið: Hver verður bestur?
Kennie bestur í maí - „Lengsta frí sem Rúnar hefur gefið mér“
Hákon Arnar: Vona að Messi spili
Gylfi um skilaréttsmálið: Meira en ánægður að hafa skipt
Aron Einar: Get staðfest að ég verð ekki áfram í Al-Gharafa
Sædís Rún: Á okkar degi getum við náð stigum af öllum liðum
Gagnrýnir nýju reglurnar harðlega - „Alveg skelfilegt ef ég á að vera hreinskilin“
Katla Tryggva fyrir Spánarleikinn: Það er alveg hægt að stríða þeim
Hödda langaði að fagna eins og Auðun gegn Haukum - „Allir á bekknum brjálaðir að hann hefði skotið"
banner
   fös 09. mars 2012 22:03
Hafliði Breiðfjörð
Gústi Gylfa: Detta niður og eru í raun hræddir við okkur
,,Við höfðum trú á að við gætum tekið eitthvað út úr þessum leik þrátt fyrir að vera 3-0 undir sem mér fannst vel ósanngjarnt framan af leik. Ef við hefðum skorað úr víti og hugsanlega fengið annað víti," sagði Ágúst Gylfason þjálfari Fjölnis eftir 2-3 tap gegn Fylki í kvöld.

,,Við missum einbeitinguna og mér fannst leiðinlegt að fá á sig tvö í andlitið á síðustu fimm mínútum í fyrri."

,,Sérstaklega því leikurinn var bara í jafnvægi og ekkert í gangi hjá þeim. En við komum til baka þrátt fyrir 3-0 og setjum tvö á þá og erum að pressa á þá síðasta korterið. Þeir detta niður og eru í raun bara hræddir við okkur."


,,Ég er mjög ánægður með að við komum til baka þrátt fyrir að vera 3-0 undir. En ég hefði viljað sjá okkur vera hugsanlega 1-2 núll yfir. En svona er þetta í fótbolta, þetta er sjokk fyrir strákana en þeir sýna karakter, við gerum það allir og komum til baka."

Í svona móti eins og núna viljum við fá eitthvað út úr þessu og við sáum glufu í því í stöðunni 3-2 og auðvitað pressum við á þá og reynum að fá eitthvað út úr því. Því miður tókst það ekki þrátt fyrir góðar tilraunir í lokin.

Nánar er rætt við Ágúst í sjónvarpinu hér að ofan.
Slapp
banner