Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   fim 15. mars 2012 22:15
Hafliði Breiðfjörð
Lengjubikarinn: Stjarnan náði stigi gegn Tindastóli í lokin
Fannar Freyr skoraði fyrir Tindastól.
Fannar Freyr skoraði fyrir Tindastól.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Stjarnan 1 - 1 Tindastóll:
0-1 Fannar Freyr Gíslason
1-1 Gunnar Örn Jónsson

Litlu munaði að Tindastóll næði að vinna Stjörnuna í Lengjubikar karla í kvöld en mark í uppbótartíma tryggði Garðbæingunum eitt stig.

Fannar Freyr Gíslason hafði komið Tindastól yfir í leiknum eftir að hafa fengið stungusendingu inn fyrir vörn Stjörnumanna og lyft boltanum yfir Davíð Guðjónsson í marki Stjörnunnar.

Tindastóll sem eru nýliðar í 1. deild var næstum búið að tryggja sér sigurinn eftir hetjulega baráttu gegn efstu deildarliðinu. Stjörnumenn lágu samt á þeim og reyndu hvað eftir annað að setja á þá jöfnunarmark og það hafðist í uppbótartíma.

Þá skoraði Gunnar Örn Jónsson með skalla og tryggði Stjörnumönnum 1-1 jafntefli.
Slapp
banner
banner