Real Madrid kynnti í dag eyju sem félagið ætlar að opna í byrjun árs 2015. Þessi magnaða eyja er staðsett í Sameinuðu arabísku furstadæmunum.
Á eyjunni verður æfingaaðstaða, lúxus-hótel, villur, leiktækjagarður, safn félagsins og leikvangur sem mun taka tíu þúsund manns í sæti.
Á eyjunni verður æfingaaðstaða, lúxus-hótel, villur, leiktækjagarður, safn félagsins og leikvangur sem mun taka tíu þúsund manns í sæti.
Eyjan er meðal annars gerð til að styrkja stöðu félagsins í Mið-Austurlöndum og Asíu.
Hér að neðan má sjá tölvugert myndband af teikningum af þessari ótrúlegu eyju en kostnaðurinn við gerð eyjunnar er einn milljarður dollara.
Athugasemdir