Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 28. mars 2012 10:39
Elvar Geir Magnússon
Heimild: Vísir.is 
KR hefur tekið tilboði Sogndal í Skúla Jón
Skúli Jón Friðgeirsson, varnarmaður KR, er á leið í viðræður við norska félagið Sogndal. Gert var tilboð í Skúla fyrir helgi sem KR svaraði með gagntilboði.

Tilboði frá Sogndal hefur nú verið tekið og er boltinn því hjá leikmanninum sjálfum samkvæmt frétt á Vísi.

Skúli var einn besti leikmaður Pepsi-deildarinnar í fyrra, lykilmaður hjá KR sem varð Íslands- og bikarmeistari með glæsibrag.

Þá kemur einnig fram á Vísi að KR sé komið með grænt ljós á að lána Hannes Þór Halldórsson í Brann í Noregi í einn mánuð. Verið er að leggja lokahönd á pappírsvinnunina.

Fjalar Þorgeirsson mun því spila þá tvo leiki sem KR á eftir í Lengjubikarnum en hann kom til félagsins frá Fylki í vetur.
Athugasemdir
banner