sun 01. apríl 2012 16:19
Magnús Már Einarsson
Lengjubikarinn: Pape með þrennu fyrir Grindavík
Grindavík 4 – 1 Höttur
1-0 Tomi Ameobi (20)
2-0 Pape Mamadou Faye (22)
3-0 Pape Mamadou Faye (45)
4-0 Pape Mamadou Faye (78)
4-1 Högni Helgason (84)

Grindvíkingar unnu Hött örugglega 4-1 í riðli þrjú í Lengjubikarnum í dag en leikið var í Reykjaneshöllinni.

Grindvíkingar komust í 2-0 með tveimur mörkum á stuttum kafla um miðbik fyrri hálfleiks og Pape Mamadou Faye bætti síðan við þriðja markinu og öðru marki sinu rétt fyrir leikhlé.

Pape innsiglaði síðan þrennu sína í síðari hálfleiknum áður en Högni Helgason náði að klóra í bakkann fyrir Hött.

Grindvíkingar enduðu með níu stig í riðlinum og sitja í fjórða sætinu en Höttur er með þrjú stig í botnsætinu fyrir síðasta leik sinn.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner