Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   þri 03. apríl 2012 06:00
Hafliði Breiðfjörð
Sigríður Bjarney í Fjarðabyggð/Leikni (Staðfest)
Sigríður Bjarney Guðnadóttir er gengin til liðs við Fjarðabyggð Leikni frá Fram.

Hún er reynslumikill leikmaður og var meðal annars valin best hjá Fram 2010.

Sigríður er varnarmaður og kemur án efa til með að styrkja hið unga lið Fjarðarbyggðar/Leiknis mikið.

Ólafur Hlynur Guðmarsson þjálfar lið Fjarðabyggð/Leiknis þetta árið. Hann var ánægður með komu Sigríðar og sagðist ætla að styrkja liðið frekar.

,,Við ætlum að reyna að styrkja liðið meira, annað hvort með íslenskum leikmönnum eða erlendum," sagði hann við Fótbolta.net.
Athugasemdir
banner
banner