Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
banner
   þri 03. apríl 2012 14:30
Magnús Már Einarsson
Heimild: Sky 
Jamie O'Hara búinn að ljúka keppni á tímabilinu
Mynd: Getty Images
Wolves hefur orðið fyrir áfalli en ljóst er að Jamie O'Hara mun ekki spila meira með liðinu á þessu tímabili.

O'Hara hefur verið frá keppni síðustu þrjár vikurnar vegna nárameiðsla.

O'Hara fór í aðgerð vegna meiðslanna í vikunni og verður frá í sex til átta vikur sem þýðir að tímabilið er búið hjá honum.

Þá verður varnarmaðurinn reyndi Jody Craddock frá keppni næstu vikurnar eftir að hafa farið í aðgerð vegna meiðsla aftan í læri.

Líklegt er að hinn 36 ára Craddock komi heldur ekki meira við sögu á tímabilinu sem er slæmt fyrir Úlfana sem eru á botninum í ensku úrvalsdeildinni.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner