fim 29. janúar 2004 00:00
Newcastle tekur boði í Solano
Aston Villa er alveg við það að fá til sín perúmannin Norberto Solano frá Newcastle en það er staðfest að Newcastle hafi tekið boði Villa í kantmanninn. Villa bauð í upphafi 1. milljón punda en því var neitað en þeir staðfestu nú laust eftir hádegið að nýju boði hafi verið tekið.

Solano á aðeins eftir að ganga frá samningi sínum en David O´Leary var orðinn örvæntingarfullur í leit að nýjum leikmönnum en Villa liðið er með einn minnsta leikmannahópinn í Úrvalsdeildinni. Gavin McCann er á leiðinni í 5 leikja bann og þá eru Lee Hendrie og Thomas Hitzlsperger meiddir.

Solano hefur ekki verið í náðinni á St. James´s Park á þessu tímabili en vonast er eftir að fyrirgjafir hans gæti nýst Juan Pablo Angel og Peter Crouch sem báðir eru lúnknir skallamenn og þá sérstaklega Crouch.
Slapp
banner
banner