Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   mið 18. apríl 2012 21:51
Magnús Már Einarsson
Lengjubikarinn: Haukur skaut Blikum áfram eftir framlengingu
Haukur skoraði sigurmarkið.
Haukur skoraði sigurmarkið.
Mynd: Fótbolti.net - Kristján Orri Jóhannsson
Keflavík 1 - 2 Breiðablik
0-1 Árni Vilhjálmsson ('75)
1-1 Guðmundur Steinarsson ('80)
1-2 Haukur Baldvinsson ('107)
Rautt spjald: Ómar Jóhannsson ('95)

Breiðablik varð í kvöld fyrsta liðið til að tryggja sér sæti í undanúrslitum Lengjubikarsins þegar liðið sigraði Keflavík 2-1 í framlengdum leik í Reykjaneshöllinni.

Árni Vilhjálmsson kom Blikum yfir þegar korter var eftir en Guðmundur Steinarsson jafnaði fimm mínútum síðar.

Snemma í framlengingunni fékk Ómar Jóhannsson markvörður Keflvíkinga að líta rauða spjaldið fyrir að brjóta á Elfari Árna Aðalsteinssyni framherja Blika.

Haukur Baldvinsson skoraði síðan sigurmarkið með skoti sem fór í varnarmann og þaðan í netið framhjá Árna Frey Ásgeirssyni sem var kominn í markið.

Breiðablik mun mæta FH eða KR í undaúrslitunum næstkomandi mánudagskvöld.
Athugasemdir
banner
banner
banner