Napoli heillar Nunez - Barcelona gæti reynt við Rashford - Fenerbahce hefur áhuga á Sancho
   lau 28. apríl 2012 08:00
Fótbolti.net
Spá Fótbolta.net - 7. sæti: Breiðablik
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Þórdís Inga Þórarinsdóttir
Mynd: Fótbolti.net - Þórdís Inga Þórarinsdóttir
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - J.L.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Sérfræðingar Fótbolta.net spá því að Breiðablik endi í sjöunda sæti Pepsi-deildarinnar í sumar. 10 sérfræðingar spá í deildina fyrir okkur þetta árið en þeir raða liðunum upp í röð og það lið sem er í efsta sæti fær 12 stig, annað sæti 11 og svo koll af kolli niður í tólfta sæti sem gefur eitt stig.

SPÁMENNIRNIR 
Eiríkur Stefán Ásgeirsson, Elvar Geir Magnússon, Hafliði Breiðfjörð, Heimir Hallgrímsson, Magnús Már Einarsson, Sigurbjörn Hreiðarsson, Tómas Þór Þórðarson, Víðir Sigurðsson, Willum Þór Þórsson, Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson.

Spáin:
1. ?
2. ?
3. ?
4. ?
5. ?
6. ?
7. Breiðablik 59 stig
8. ÍBV 54 stig
9. Keflavík 35 stig
10. Grindavík 31 stig
11. Fylkir 30 stig
12. Selfoss 16 stig

Um liðið: Eftir að hafa unnið bikarmeistaratitilinn 2009 og Íslandsmeistaratitilinn árið 2010 voru erfiðari tímar í Kópavoginum í fyrra.  Blikar soguðust niður í fallbaráttu undir lok móts en enduðu síðan í sjötta sæti eftir sigur í síðustu tveimur leikjum sínum.


Hvað segir Heimir? Heimir Hallgrímsson aðstoðarlandsliðsþjálfari er sérstakur álitsgjafi Fótbolta.net um liðin í Pepsi-deild karla. Heimir hefur náð mjög góðum árangri með lið ÍBV undanfarin ár.  Síðastliðið haust var Heimir ráðin aðstoðarþjálfari íslenska landsliðsins eftir að Lars Lagerback var ráðinn þjálfari. Hér að neðan má sjá álit Heimis.

Styrkleikar: Styrkleikar Breiðabliks liggja í yngri flokka starfi félagsins. Það eitt að fimm uppaldir leikmenn hafa farið úr Breiðabliki í atvinnumennsku síðustu tvö árin segir allt sem segja þarf. (Kristinn Steindórsson, Guðmundur Kristjánsson, Arnór Sveinn Aðalsteinsson, Alfreð Finnbogason og Elfar Freyr Helgason). Liðið er ungt að árum og skipað frískum, flinkum strákum. Hvaða ungi leikmaður mun slá í gegn í sumar er ómögulegt að segja til um. Önnur lið munu hræðast hraða og tækni Hauks Baldvins og Tómasar Óla á köntunum.

Veikleikar: Liðið er ungt og þeir leikmenn sem munu fylla skörð þeirra sem hafa farið erlendis koma að mestu úr unglingastarfinu og hafa litla reynslu. Þess vegna skiptir byrjun mótsins ákaflega miklu fyrir Breiðablik. Ef illa gengur er mikil ábyrgð sett á ungar herðar og nokkuð ljóst að einhverjir munu ekki þola mótlætið og pressuna sem fylgir því að spila undir pressu í úrvalsdeild. Ef ég væri í stjórn knattspyrnudeildar Breiðabliks hefði ég áhyggjur af þessu. Liðinu vantar reynslumikla leikmenn sem þeir ungu geta leitað til þegar harðnar í dalnum.
Annað árið í röð hefur Breiðablik selt sinn aðal markaskorara og það að skora verður líklega veikleiki liðsins í sumar. Petar Rnkovic hefur reyndar góðan feril sem markaskorari og honum er líklega ætlað að bera uppi sóknarleik liðsins. Ef Guðmundur Pétursson er heill heilsu má segja að Blikar fái nýjan leikmann í honum. Báðir þessir leikmenn líkt og Elfar Árni Aðalsteinsson eiga þó eftir að sanna sig sem markaskorarar í Pepsi-deildinni.


Þjálfarinn: Ólafur Kristjánsson
Ólafur Kristjánsson hefur unnið frábært starf fyrir Breiðablik. Hann hefur gefið ungum leikmönnum tækifæri og traust og margir þeirra hafa sprungið út á met tíma. Óli er djúpur þegar kemur að viðtölum eftir leik en hnittin tilsvör og forn orðaforði eiga rætur sínar að rekja til mömmu Óla sem er Íslenskukennari.
Óli hefur hrúgu knattspyrnuspekúlanta sér til aðstoðar. Úlfar Hinrksson, Arnar Bill og aðstoðarþjálfarinn Guðmundur Benediktsson eru í úrvalsflokki knattspyrnuþjálfara á landinu. 


Lykilmenn: Ingvar Kale, Petar Rnkovic og hinn ungi fyrirliði Finnur Orri Margeirsson. 

Gaman að fylgjast með: Það verður gaman að fylgjast með Andra Rafni Yeoman í sumar. Skapandi, teknískur leikmaður sem getur líka skorað. Andri gæti sprungið út og orðið næsta útflutningsvara Breiðabliks.  

Líklegt byrjunarlið í upphafi móts:


Stuðningsmaðurinn segir:
Eiríkur Hjálmarsson upplýsingafulltrúi Orkuveitunnar: ,,Þeir voru ekkert alltof brattir í fyrrasumar og náðu ekki að fylgja eftir tveimur tiltum þar á undan.  Ég sá þá spila bráðskemmtilegan leik á móti KR í undanúrslitaleik deildabikarsins og ég held að það búi hellingur í þessu liði til að verða ofar ef menn vilja."

Völlurinn:
Breiðablik leikur heimaleiki sína á Kópavogsvelli. Völlinn umlykur hlaupabraut og við hlið hennar er lítil stúka sem tekur 369 áhorfendur.

Gengt gömlu litlu stúkunni er yfirbyggð glæsileg stúka sem tekur 1340 í sæti. Önnur áhorfendaaðstaða í kringum völlinn er grasbrekka sem er gefin upp fyrir 3330 áhorfendur. 

Breytingar á liðinu:

Komnir:
Elfar Árni Aðalsteinsson frá Völsungi 
Gísli Páll Helgason frá Þór 
Petar Rnkovic frá Mjøndalen í Noregi 
Sindri Snær Magnússon frá ÍR 
Stefán Þór Pálsson frá ÍR 
Viggó Kristjánsson frá Gróttu 
 

Farnir:
Ágúst Örn Arnarson í Fjölni
Guðmundur Kristjánsson í Start
Kári Ársælsson í ÍA
Kristinn Steindórsson í Halmstad
Viktor Unnar Illugason í Hauka á láni  

Komnir:

Björgólfur Takefusa frá KR

Baldur Ingimar Aðalsteinsson frá Val

Hörður Sigurjón Bjarnason úr Þrótti

Ingólfur Þórarinsson frá Selfossi

Mark Rutgers frá KR

Pétur Georg Markan frá Fjölni

Róbert Örn Óskarsson frá BÍ/Bolungarvík

 

Farnir:

Daníel Hjaltason til Modum í Noregi

Jakob Spangsberg

Milos Glogovac í KF

Viktor Örn Guðmundsson í FH (Var á láni)

Robin Faber


Leikmenn Breiðabliks sumarið 2012:
1. Magnús Þormar 

3. Hörður Sigurjón Bjarnason

4. Ingólfur Þórarinsson

5. Mark Rutgers

6. Halldór Smári Sigurðsson

7. Þorvaldur Sveinn Sveinsson

8. Kristinn Magnússon

9. Kjartan Dige

10. Egill Atlason

11. Baldur Ingimar Aðalsteinsson

12. Patrik Atlason

13. Róbert Örn Óskarsson

14. Tómas Guðmundsson

15. Marteinn Briem

16. Pétur Georg Markan

17. Garðar Leifsson

18. Milos Milojevic

19. Svavar Cesar Hjaltested

20. Helgi Sigurðsson

21. Walter Hjaltested

22. Sigurður Egill Lárusson

23. Hjalti Már Hauksson

24. Viktor Jónsson

25. Aron Þrándarson

26. Davíð Atlason

27. Gunnar Helgi Steindórsson

28. Sverrir Þór Garðarsson

30. Björgólfur Takefusa

1 Ingvar Þór Kale 
2 Gísli Páll Helgason 
3 Finnur Orri Margeirsson 
5 Sindri Snær Magnússon 
7 Elfar Árni Aðalsteinsson 
9 Haukur Baldvinsson 
10 Rafn Andri Haraldsson 
11 Olgeir Sigurgeirsson 
14 Höskuldur Gunnlaugsson
15 Sverrir ingi Ingason
16 Adam Örn Arnarson
17 Jökull I Elísabetarson
18 Arnar Már Björgvinsson
19 Kristinn Jónsson
20 Stefán Pálsson
21 Þórður Steinar Hreiðarsson
22 Hrannar Einarsson
23 Árni Vihjálmsson
24 Guðmundur Pétursson
25 Sigmar Ingi Sigurðsson
26 Páll Olgeir Þorsteinsson
27 Tómas Óli Garðarsson
28 Petar Rnkovic
30 Andri Rafn Yeoman
31 Guðmundur Friðriksson
32 Alexander Helgi Sigurðarson
33 Ósvald Jarl Traustason  
34 Ingiberg Ólafur Jónsson

Leikir Breiðabliks 2012:
6. maí Breiðablik - ÍA
10. maí ÍBV - Breiðablik
14. maí Breiðablik - Valur
20. maí FH - Breiðablik
24. maí Breiðablik - Fram
31. maí Selfoss - Breiðablik
16. júní Breiðablik - Grindavík
20. júní Breiðablik - KR
2. júlí Fylkir - Breiðablik
5. júlí Breiðablik - Keflavík
16. júlí Stjarnan - Breiðablik
23. júlí ÍA - Breiðablik
29. júlí Breiðablik - ÍBV
8. ágúst Valur - Breiðablik
12. ágúst Breiðablik - FH
20. ágúst Fram - Breiðablik
26. ágúst Breiðablik - Selfoss
3. september Grindavík - Breiðablik
16. september KR - Breiðablik
20. september Breiðablik - Fylkir
23. september Keflavík - Breiðablik
29. september Breiðablik - Stjarnan
Athugasemdir
banner